Erlent

Medvedev sækist áfram eftir embætti forseta Rússlands

Dmitry Medvedev forseti Rússlands hefur fullan hug á því að sækjast eftir öðru kjörtímabili sem forseti.

Þar með myndi hann brjóta gegn samkomulagi sem hann og Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands hafa gert um að Putin taki aftur við forsetaembættinu.

Þetta kemur fram í The Guardian þar sem rætt er við háttsettan þingmann úr stjórnarflokki Rússlands. Þingmaðurinn, Konstantin Zatulin segir að samstarfsmenn Medvedev séu í herferð til að grafa undan Putin, bæði innan og utan þingsins.

Forsetakosningar verða í mars á næsta ári og hingað til hefur verið gengið út frá því sem gefnu að Medvedev myndi víkja fyrir Putin í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×