Erlent

Hattur Beatrice prinsessu á uppboði

Hatturinn sem Beatrice prinsessa, dóttir Söru Ferguson, bar í brúðkaupi þeirra Vilhjálms prins og Katrínar Middleton hefur verið boðinn til sölu á eBay uppboðsvefnum.

Þegar hafa 64 tilboð borist í hattinn og stendur hæsta boð nú í 18.400 pundum eða um 3,5 milljónir króna. Það sem fæst fyrir hattinn rennur til Unicef og góðgerðarsamtakanna Children in Crises.

Mjög skiptar skoðanir eru um þennan hatt og honum hefur meðal annars verið líkt við klósettsetu, hreindýrshaus og saltkringlu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×