Erlent

Schwarzenegger viðurkennir barnseign með starfsstúlku

Arnold Schwarzenegger fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu hefur nú viðkennt að hann hafi eignast barn með einni af starfsstúlkunum á heimili sínu fyrir um áratug síðan.

Barn þetta var kornið sem fyllti mælinn hjá Mariu Shriver eiginkonu Arnolds en þau skildu nýlega.

Maria þoldi ítrekað framhjáhald eiginmanns síns í fjölda ára og hafði þá velferð fjögurra barna þeirra í huga. Einnig stóð hún með manni sínum árið 2003 þegar 16 konur kærðu Arnold fyrir kynferðislega áreitni á yfir 30 ára tímabili.

Hinsvegar mun hún ekki hafa þolað það að Arnold gerði starfsstúlkuna ólétta á heimili þeirra fyrir 10 árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×