Samtök atvinnulífsins samþykkja kjarasamningana 17. maí 2011 10:35 Vilmundur Jósefsson, formaður SA.
Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga í allsherjaratkvæðagreiðslu sem fram fór í síðustu viku. Samningarnir voru samþykktir með 75% greiddra atkvæða, 21,5% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 3,5% tóku ekki afstöðu. Kosningaþátttaka var 57% að því er fram kemur í tilkynningu frá SA. „Um var að ræða rafræna atkvæðagreiðslu og voru greidd atkvæði um alla samningana í einu á grundvelli atkvæðavægis aðildarfyrirtækja SA. Í samþykktum SA er gert ráð fyrir að stefnumarkandi kjarasamningar geti farið í almenna atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna og var það gert í fyrsta skipti eftir undirskrift kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í febrúar 2008." Frestur til að tilkynna um afgreiðslu kjarasamninganna er til kl. 16:00 miðvikudaginn 25.maí en kynning á efni þeirra og atkvæðagreiðsla um gildistöku stendur nú yfir meðal stéttarfélaganna. Samningarnir taka ekki gildi fyrr en samþykki beggja samningsaðila liggur fyrir. Eftir að SA skrifuðu undir kjarasamningana 5. maí voru gerðir sambærilegir kjarasamningar við Framsýn, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélag Akraness, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja og Verkstjórasamband Íslands.
Mest lesið Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Sjá meira