Fjölmenningardagur í Reykjavík á morgun 13. maí 2011 16:01
Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur á morgun þegar að Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að markmiðið með hátíðahöldunum sé að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á. Dagurinn er skipulagður af mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í samstarfi við samtökin Samhljómur menningarheima. Undirbúningur fyrir hátíðina er nú að ná hámarki en alls koma 50 manns að framkvæmdinni á einn eða annan hátt. Boðið verður upp á glæsilega dagskrá sem miðar að því að allir fái notið sín og fjölmenningin blómstri. „Að setningu lokinni fer fjölþjóðleg skrúðganga af stað og verður gengið frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Í kjölfarið verður svo haldin fjölþjóðleg hátíð í Ráðhúsinu þar sem boðið verður uppá fjölbreytta og lifandi skemmtidagskrá. Í Iðnó verður fjölþjóðlegur markaður þar sem kynntar verða vörur og handverk frá hinum ýmsu löndum. Meðal atriða má nefna dansatriði frá Perú, Búlgaríu, og Thailandi," segir í tilkynningunni. „Auk þess mun barnakór frá Litháen syngja nokkur lög og Pólskur söng- og danshópur mun leika listir sínar. Fjölmenningardagurinn hefur öðlast fastan sess í hugum borgarbúa og er ávallt vel sóttur af íbúum. Enda gefst einstakt tækifæri til að sýna sig og sjá aðra og kynnast framandi menningu og matargerð. Allir eru velkomnir og sjá má ítarlegri dagskrá á heimasíðu Reykjavíkur www.reykjavik.is “
Mest lesið Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Innlent Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Innlent Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Erlent Fundinn heill á húfi Innlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Innlent Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Sjá meira