Innlent

Viðbrögð Vina Sjonna þegar Ísland komst áfram

Þvílík gleði braust út þegar að Ísland komst áfram úr fyrri undanúrslitariðli Eurovision síðastliðið þriðjudagskvöld. Í meðfylgjandi myndbandi sést hvernig Vinir Sjonna gjörsamlega farast úr gleði þegar að Íslenski fáninn birtist á skjánum.

Veðbankar og aðrir áhugamenn um keppnina áttu ekki von á því að íslenska lagið kæmist áfram og því voru væntingarnar, þegar að aðeins einn fáni var eftir, ekki miklar hjá hópnum. En, þvert á allar spár, komst lagið áfram - enda stóð hópurinn sig ótrúlega vel á sviðinu í Þýskalandi.

Á morgun er svo úrslitakvöldið og er Ísland númer 21 í röðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×