Transfólk fordæmir orðaval þulu í Eurovision 13. maí 2011 11:14 Dana International söng sigurlag ísraela í Eurovision árið 1998, og tók aftur þátt í ár. „
Bleiki hnefinn fordæmir niðrandi ummæli Hrafnhildar Halldórsdóttur Eurovision-þulu og krefst þess að hún, ásamt Ásgrími Angantýssyni málfarsráðunaut RÚV og Páli Magnússyni útvarpsstjóra, biðjist afsökunar vegna fordómafullra ummæla Hrafnhildar frá því í gær um keppanda Eurovision sem farið hefur í aðgerð til leiðréttingar á kyni." Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bleika hnefanum, aðgerðahópi róttækra kynvillinga. Í hópnum er meðal annars transfólk. Áður en ísraelska söngkonan Dana International steig á svið í seinnii undankeppninni á fimmtudag, sagði Hrafnhildur: „Dana heitir í raun Yaron Cohen og er tæplega fertugur karlmaður. Eftir kynskiptingu heitir hún Sharon Cohen, þetta vita auðvitað allir því Dana sigraði Eurovision keppnina árið 1998 í Birmingham." Krafa Bleika hnefans er að Hrafnhildur biðji almenning, sérstaklega transfólk, afsökunar á ummælunum í beinni útsendingu frá Eurovision-söngvakeppninni á morgun 14. maí. Jafnframt skorar hópurinn á Pál og Ásgrím að biðjast afsökunar skriflega. Dana International er ekki karlmaður - hún er kona sem fæddist í karlmannslíkama og fór í aðgerð til leiðréttingar á kyni. Hún heitir ekki Yaron Cohen heldur Sharon Cohen, hið rétta er að hún hét Yaron. „Ummæli Hrafnhildar bæði einkennast af og ýta undir skilningsleysi og fáfræði gagnvart transfólki. Það er sérlega alvarlegt í ljósi þess að leitandi er að öðrum hópi í íslensku samfélagi sem verður fyrir álíka miklum fordómum. Félagsleg og lagaleg réttindi hópsins eru í óvissu og andlegt álag mikið. Það er því mjög alvarlegt þegar sjónvarp allra landsmanna ýtir undir fordóma með þeim hætti sem gert var í beinni útsendingu frá Eurovision á fimmtudaginn sl.," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Innlent Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Innlent Fundinn heill á húfi Innlent Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Erlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Innlent Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Sjá meira