Innlent

Banaslys á Austfjörðum

Banaslys varð laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi á þjóðveginum um Kambanes á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fólksbifreið hafi verið ekið út af veginum og hún farið nokkrar veltur. „Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr henni og lést á vettvangi skömmu seinna. Hann var á fimmtugsaldri."

Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samvinnu við rannsóknarnefnd umferðarslysa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×