Lífið

Elma Lísa á leiðinni til Cannes

Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir fer á kvikmyndahátíðina í Cannes á fimmtudaginn því kvikmyndin Edlfjall, fyrsta mynd Rúnars Rúnarssonar, sem hefur ekki enn verið sýnd hér á landi, keppir í tveimur flokkum, Camera d´Or og Directors Fortnight, en Elma Lísa fer með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni.

Leikkonan Birgitta Birgisdóttir tekur að sér hlutverk Elmu Lísu í leikritinu Nei Ráðherra! í Borgarleikhúsinu á meðan Elma Lísa spókar sig um á rauða dreglinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×