Erlent

Strangar reglur fyrir lögreglumenn í Víetnam

Víetnamskir lögreglumenn mega ekki vera með svört sólgleraugu, spjalla saman, reykja eða hafa hendur í vösum á meðan þeir sinna skyldustörfum á opinberum stöðum.

Það var innanríkisráðherra landsins sem setti þessar reglur í síðustu viku.

Þá mega lögreglumenn ekki heldur lesa bækur, svara einkasímtölum eða drekka áfengi á meðan þeir standa vörð um lög reglur í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×