Erlent

Verðmætar myndir

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Bandarískur áhugaljósmyndari datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann var að gramsa í dóti á bílskúrssölu og fann þar gamlar ljósmyndafilmur. Hann greiddi einungis tvöhundruð og þrjátíu íslenskar krónur fyrir fundinn en varð ljóst við framköllun að hann var mun verðmætari.

Myndirnar voru nefnilega af leikkonunni Marilyn Monroe og teknar áður en hún komst til frægðar.

Fréttastofa CNN hefur fengið leyfi til að birta þær næstkomandi þriðjudag, einum degi fyrir afmælisdag leikkonunnar, en Monroe hefði orðið áttatíu og fimm ára þann fyrsta júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×