Erlent

Giftu sig loksins eftir að hafa verið trúlofuð í 28 ár

Loksins, hefur eflaust einhver sagt þegar að breska parið Ivan Brown og Barbara Furlonger giftu sig í síðustu viku. Þau voru búin að vera trúlofuð í 28 ára, hvorki meira né minna.

Þau ákváðu að gifta sig árið 1983 en þurftu að fresta því vegna anna í vinnu. Og svona hefur þetta gengið ár eftir ár - þangað til nú. Þau fundu loksins tíma til að geta gift sig, tuttugu og átta árum eftir trúlofunina.

„Ég trúi því varla að dagurinn rann loksins upp," segir Barbara. „Ég hélt að þetta myndi aldrei gerast, því við vorum alltaf að fresta þessu. Þegar ég fór á eftirlaun í fyrra, spurði ég Ivan hvort við ættum ekki að drífa í þessu og hann sagði já. Ef ég hefði verið að skipuleggja brúðkaupið stressuð og upptekin út af vinnunni, hefðu hlutirnir ekki farið á réttan veg og ég hefði orðið pirruð," segir Barbara.

Og hjónin ætla heldur betur að dekra við sig því þau eru farin í brúðkaupsferð til Channel eyja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×