Erlent

Tvær konur og tólf börn fórust í árás NATÓ

Fjórtán borgarar féllu í loftárás NATO í suð vestur Afganistan í Helmands héraði í gær. Loftárásin varð eftir að talíbanar réðust á bandaríska herstöð á svæðinu. Árás NATO var beint að uppreisnarmönnum en lenti á tveimur heimilium almennra borgara þar sem tvær konur og tólf börn féllu, sum undir tveggja ára aldri. Málið er nú til rannsóknar hjá Nato og afgönskum hersveitum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×