Vatnsberinn í miðbæinn 27. maí 2011 17:26 = mynd Þegar Vatnsberinn var pantaður hjá Ásmundi var listaverkinu ætlaður staður á horni Bankastrætis og Lækjargötu. Þegar höggmyndin var tilbúin spruttu hins vegar upp miklar deilur þar sem margir töldu myndina sem var gefin af konunni með vatnsföturnar einfaldlega ljóta. Myndin er samsett.
Borgarráð hefur samþykkt að höggmyndin Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson verði flutt ofan af holtinu við Veðurstofu Íslands og hún staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, samkvæmt tillögu Listasafns Reykjavíkur. Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar og var á meðal þeirra sem kynntu fyrir Íslendingum nýja formskrift í myndlist 20. aldar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Verkum hans var ekki alltaf jafn vel tekið, en með tímanum hafa þau fest sig í sessi sem ein af birtingarmyndum íslenskrar sagnahefðar, samfélags og náttúru á 20. öld. Hann sótti innblástur í íslenska náttúru og bókmenntir. Ásmundur lauk við Vatnsberann árið 1937 og er hann eitt þekktasta verk hans.“ Talið er að Vatnsberanum hafi verið ætlað að standa nálægt Bernhöftsbrunninum, sem var síðasti brunnurinn í Reykjavík, til minningar um vatnsberana sem settu svip sinn á gamla miðbæinn í kringum aldamótin 1900, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Brunnurinn var staðsettur í bakarabrekkunni svokölluðu, nánar tiltekið á Bakarastíg sem nú er Bankastræti. Brunnurinn og bakarabrekkan draga nöfn sín af Tönnes Daniel Bernhöft bakara, sem rak bakarí þar sem nú er Bankastræti 2 allt frá 1845. Bernhöft var athafnamaður og lét grafa brunn vestan við bakaríið.“ Þó nokkrar deilur komu upp þegar staðsetja átti Vatnsberann í borgarlandinu á sínum tíma, en höggmyndin hefur staðið á holtinu við Veðurstofu Íslands frá árinu 1967. Segja má að styttan verði komin heim þegar búið verður að koma henni fyrir á horni Lækjargötu og Bankastrætis en unnið er að útfærslu flutningsins sem fram mun fara á næstu vikum.
Mest lesið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira