Fótbolti

Leikmenn Barcelona fá helmingi hærri bónus en leikmenn Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi og Villa fá vel útborgað ef þeir vinna á morgun.
Messi og Villa fá vel útborgað ef þeir vinna á morgun.
Það er til mikils að vinna fyrir leikmenn Barcelona á morgun. Vinni þeir leikinn gegn Man. Utd í úrslitum Meistaradeildarinnar fær hver leikmaður rúmlega 123 milljónir króna í bónus fyrir sigurinn.

Það gerir 1,3 milljónir króna á hverja mínútu eða 23 þúsund fyrir hverja spilaða sekúndu. Ekki amalegt kaup það.

Leikmenn Barcelona fengu svipaðan bónus er þeir lögðu Man. Utd í úrslitum fyrir tveim árum síðan.

Þessi bónus er tæplega helmingi hærri en leikmenn Man. Utd munu fá en vinni United leikinn fá leikmenn félagsins "aðeins" 67 milljónir króna á mann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×