Formúla 1

Vettel: Minnstu mistök dýrkeypt

Sebastian Vettel með verðlaunagripinn eftir sigur í Formúlu 1 mótinu á Spáni í gær.
Sebastian Vettel með verðlaunagripinn eftir sigur í Formúlu 1 mótinu á Spáni í gær. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er búinn að vinna fjögur mót á árinu og næsta viðfangsefni hans er keppnin í Mónakó um næstu helgi. Þar mætir hann ásamt liðsfélaganum Mark Webber, sem vann keppnina í Mónakó í fyrra. Vettel vann mótið á Katalóníu brautinni á Spáni í gær, eftir hörkueppni við Lewis Hamilton hjá McLaren.

Vettel er efstur í stigamóti ökumanna með 118 stig, Hamilton er með 77, Webber 77, Jenson Button 67 og Fernando Alonso 51.

„Það er óvenjulegt að keyra Formúlu 1 bíl í Mónakó. Brautin er einstök og einstakt verkefni fyrir ökumann. Maður verður að keyra eins stíft og á venjulegri braut, en minnstu mistök geta verið dýrkeypt", sagði Vettel í fréttatilkynningu frá Red Bull um næsta verkefni sitt í Formúlu 1, en hann æfir á Mónakó brautinni ásamt keppinautum sínum á fimmtudaginn. Brautin er afmörkuð á götum Mónakó og lokuð almennri umferð á meðan hún er í notkum fyrir Formúlu 1.

„Það er mikilvægt að ná góðum stað á ráslínu og það getur ráðið úrslitum, þar sem það hefur verið mjög erfitt að fara framúr. Þetta er einn af hápunktum ársins. Við náðum góðum árangri í fyrra og ég vona að við verðum sterkir á ný", sagði Vettel, sem gat þess líka að vandasamt væri að keyra í tímatökum. Brautin er þröng og þegar margir keppnisbílar keyra hana í einu, getur verið erfitt að hitta á rétta tímasetningu fyrir hraðann hring, án þess að keppinautar séu í veginum.

Webber telur að keppnisáætlanir gæti orðið flóknar í Mónakó í ár, vegna nýju Pirelli dekkjanna, sem slitna hraðar og öðruvísi en Bridgestone dekkin sem voru notuð í fyrra.

„Við vitum að þetta er ein virtasta keppni ársins. Það eru mörg spurningarmerki varðandi mótið á þessu ári varðandi hvernig dekkin koma til með að virka og keppnisáætlunin gæti orðið sú flóknasta á árinu", sagði Webber.

„Mér hefur alltaf gengið þokkalega og margar af mínu bestu minningum í kappakstri eru þaðan. Þetta er braut sem reynir á, sem krefst ótrúlegrar einbeitingar og ró ökumanns alla mótshelgina, alveg frá æfingum á fimmtudag. Strandlengjan er er stórbrotinn og klettarnir eru ótrúlegur bakgrunnur einnar þekktustu brautar heims. Brautin er engri lík", sagði Webber.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×