Erlent

Létust í árekstri við fljúgandi skógarbjörn

Tveir létust í undarlegu bílslysi í Kanada á mánudaginn þegar 130 kílóa skógarbjörn kom fljúgandi í gegnum rúðu fólksbíls. Björnin hafði lent fyrir flutningabíl sem var á leið í gagnstæða átt við fólksbílinn og við höggið tókst hann á loft yfir á hinn vegarhelminginn. Þar kom fólksbíllinn aðvífandi á fullri ferð og lenti björninn með fullum þunga á honum.

Þrír voru í bílnum og létu bílstjórinn og farþegi í aftursæti samstundis lífið. Farþegi í framsætinu slasaðist nokkuð en er þó ekki í lífshættu. Björninn drapst einnig við höggið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×