Erlent

Klámstjarna tekur til varna fyrir Strauss-Kahn

Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og nú sakbornings í New York hefur borist stuðningur úr óvæntri átt.

Klámstjarnan Michelle Conti, einnig þekkt sem Natasha Kiss, hefur tekið til varna fyrir Strauss-Kahn. Hún heldur því fram að hafa stundað kynlíf með Strauss-Kahn nokkrum sinnum og að hann hafi verið sannur herramaður í hvert sinn en ekki slefandi graðnagli eins og gefið hefur verið í skyn.

Þá segist Conti vera hneyksluð á þeirri meðferð sem Strauss-Kahn hefur sætt og segir að forstjórinn fyrrverandi sé meðhöndlaður verr en leigumorðingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×