Erlent

Hélt´ann væri Gillzenegger

Óli Tynes skrifar
Forsíðan á næstu símaskrá?
Forsíðan á næstu símaskrá?
Grátklökkur þingmaður demokrataflokksins í Bandaríkjunum hefur viðurkennt að hafa sjálfur sent myndir af sér fáklæddum til annarra kvenna en eiginkonu sinnar. Í rúma viku hafði Anthony Weiner logið því til að einhver hefði hakkað sig inn á twitter síðu hans og gert það að sér forspurðum.

Á blaðamannafundi í gær viðurkenndi hann loks að hann hefði sent það sem bandarískir fjölmiðlar kalla "frygðarlegar" myndir af sjálfum sér til einna sex kvenna á síðustu þrem árum. Hann baðst innilega afsökunar á framferði sínu og lygunum en sagðist ekki mundu segja af sér þingmennsku. Weiner hefur setið sex kjörtímabil á bandaríska þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×