Erlent

Norður-Kórea næstbest í heiminum

Óli Tynes skrifar
Matmálstími í sæluríkinu Norður-Kóreu.
Matmálstími í sæluríkinu Norður-Kóreu.
Kína er heimsins besta land að búa í og Norður-Kórea er númer tvö. Þetta er niðurstaða ítarlegrar rannsóknar sem sjónvarpsstöð í Norður-Kóreu gerði. Rannsóknin tók til eitthundrað og tveggja landa sem gátu fengið stig frá núll upp í eitthundrað.

 

Niðurstaðan var sú að Kína fékk 100 stig og Norður-Kórea 98. Næstu þrjú í röð hamingjuríkja eru Kúba, Íran og Venesúela. Neðst á listanum eru svo  hin óhamingjusömu Bandaríki með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×