Erlent

Ban Ki-moon áfram framkvæmdastjóri SÞ

Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hefur formlega lýst því yfir að hann gefi kost á sér í önnur fimm ár í embættinu.

Samkvæmt frétt um málið á BBC er nær öruggt að Ban Ki-moon muni halda stöðunni þar sem enginn hefur gefið kost á sér á móti honum.

Ban Ki-moon sagði á blaðamannafundi í New York í gærdag að það væru mikil forréttindi að fá að stjórna þeim stórkostlegu samtökum sem Sameinuðu þjóðirnar eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×