Innlent

Aflífa þurfti reiðhest eftir umferðaróhapp

Aflífa þurfti stórslasaðan reiðhest en annar slapp lítið meiddur eftir að kerra með hestunum losnaði aftan úr bíl á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis í nótt.

Kerran endastakkst út fyrir veginn þar sem hún hafnaði upp á endann, á gaflinum. Þegar hinn hesturinn náðist úr flakinu trylltist hann og tók á sprett, en náðist nokkru síðar.

Dýralæknir úrskurðaði slasaða hestinn dauðvona og var hann aflífaður á staðnum. Lögreglan á Selfossi rannsakar tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×