Allir sem greinst hafa með HIV notuðu rítalín frá læknum Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. júní 2011 18:30
Allir þeir sprautufíklar sem greinst hafa HIV jákvæðir á þessu ári sprautuðu sig með rítalíni í æð sem ávísað var af læknum. Yfirlæknir smitsjúkdóma segir að hemja verði dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax. Það sem af er þessu ári hafa ellefu eintaklingar greinst HIV-jákvæðir. Af þessum ellefu eru tíu Íslendingar, sprautufíklar sem sprautuðu sig með rítalíni í æð. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma hjá Landspítalanum, hefur miklar áhyggjur af þessari þróun. Allir á læknadópi Í bréfi sem hann sendi landlæknisembættinu hinn 13. maí síðastliðinn og fréttastofa hefur undir höndum, segir hann að í samtölum við fíkla sem hafi greinst á þessu ári komi í ljós að allir hafi þeir neytt rítalíns sem var ávísað af læknum. Már segir að ömurlegt sé til þess að vita að allt það rítalín sem neytt sé á götum borgarinnar sé ávísað af læknum. Fíklar hafi upplýst að vanalegt sé að fenginn sé lyfjaskammtur frá lækni, hluti hans notaður til eigin nota en bróðurpartur seldur á götunni í gegnum millilið. Frá því að Már sendi bréfið hafa fjórir sprautufíklar greinst HIV-jákvæðir til viðbótar. Þeir eru því orðnir alls tíu á þessu ári, eins og áður segir. Þeir notuðu allir rítalín sem ávísað var læknum. Eins og fréttastofa greindi frá í gær eru fjórir til viðbótar, sem að öllum líkindum eru smitaðir en þeir sprautuðu sig með tveimur fíklum sem greindust HIV-jákvæðir í síðustu viku. Nöfn þeirra eru óþekkt og smitsjúkdómadeild reynir með öllum mögulegum leiðum að hafa upp á þeim til að fá þá í prufu svo þeir óafvitandi smiti ekki aðra. Hefur hún áður notið fulltingis lögreglu í aðgerðum af þessu tagi. „Þrátt fyrir þessa frétt sem var í blöðunum í gær, þá er ástandið annað. Fíklarnir segja okkur að þeir séu að selja rítalínið. Þeir fá sig metna sem ofvirka með athyglisbrest og fá svo ávísað á sig lyfinu. Þeir nota sumt sjálfir og annað selja þeir," segir Már í samtali við fréttastofuna. Már segir í bréfinu til landlæknis að HIV-smit meðal fíkla sé alvarleg aðsteðjandi samfélagsleg ógn. Forvarnir gegn því að ungt fólk leiðist í fíkniefnaneyslu og virkar athafnir gegn aðgengi að fíkniefnum þurfi að efla stórlega. Í ljósi þess að allir sem séu að smitast af HIV séu að nota rítalín ávísað af læknum segir Már í bréfi sínu til landlæknis að hemja þurfi dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax. „Landlæknir og sóttvarnarlæknir vita um þetta ástand," segir Már. Hann segist ekki hafa fengið nein bein viðbrögð frá landlæknisembættinu vegna bréfsins, en í bréfinu hafi heldur ekki verið óskað eftir svari heldur hafi tilgangur þess verið að upplýsa embættið um hversu alvarlegt ástandið væri orðið. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir HIV smitaðra sprautufíkla leitað Fjórir HIV smitaðir fíklar ganga lausir og gætu smitað aðra finnist þeir ekki í tæka tíð. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir algengt að spítalinn þurfi aðstoð lögreglu til að hafa upp á HIV smituðum fíklum 5. júní 2011 18:30 Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Bíll alelda á Hellisheiði Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Fleiri fréttir Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Sjá meira
HIV smitaðra sprautufíkla leitað Fjórir HIV smitaðir fíklar ganga lausir og gætu smitað aðra finnist þeir ekki í tæka tíð. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir algengt að spítalinn þurfi aðstoð lögreglu til að hafa upp á HIV smituðum fíklum 5. júní 2011 18:30