Lífið

Liðið skemmti sér greinilega

Meðfylgjandi myndir voru teknar í teiti hjá auglýsingastofunni PIPAR/TBWA 1. júní þar sem ný deild í samfélagsmiðlum var kynnt en alls 1.017 manns sóttu um vinnu í umræddri deild og voru fjórir ráðnir.

Auglýsingastofan átti 17 ára afmæli þennan dag og Valli, Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri stofunnar varð 43 ára þann dag líka. Margt var um manninn og stóð gleðskapurinn fram eftir nóttu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×