Erlent

Vilhjálmur prins og Katrín flytja í Kensingtonhöll

Hertoginn og hertogaynjan af Cambrigde, þau Vilhjálmur prins og Katrín Middleton, munu flytja inn í nýtt heimili sitt í Kensingtonhöll á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni.

Vilhjálmur bjó áður með Díönu prinsessu móður sinni og Harry prins bróður sínum í Kensingtonhöll eftir að Díana og Karl Bretaprins skildu.

Sem stendur búa þau Vilhjálmur og Katrín í Wales þar sem hertoginn þjónar í þyrlubjörgunarsveit á vegum breska flughersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×