Innlent

Snjóél á Akureyri í nótt

Snjóél gerði á Akureyri um tvö leitið í nótt þannig að þar gránaði um tíma, en snjórinn var horfinn í morgunsárið.

Víða var hiti aðeins á bilinu eitt til þrjú stig á láglendi um norðanvert landið í nótt. Hinsvegar var næturfrost sumstaðar á hálendinu í nótt og áfram er spáð norðlægum áttum og að svalt verði í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×