Innlent

Fylgjast með læknum sem ávísa lyfjum á sig sjálfa

Landlæknisembættið skoðaði sérstaklega lyfjaávísanir hjá fimmtíu og einum lækni á síðasta ári, en í öllum þeim tilvikum höfðu læknarnir ávísað lyfjum á sjálfa sig.

Fram kemur á heimasíðu embættisins að eftirlit sé haft með slíkum ávísunum og ef þær reynast óeðlilegar á einhver hátt sé það skoðað sérstaklega.

Ef ekki liggur fyrir eðlileg skýring fyrir ávísunum lækna á lyf fyrir sjálfa sig er brugðist við því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×