Erlent

Ferjusigling setur Noreg á annan endann

Kristján Már Unnarsson skrifar
Það þykir raunar umhugsunarefni að svona sjónvarpsefni skuli slá í gegn. NRK í Bergen sendi í fyrra út samfellda dagskrá á rauntíma frá lestarferð milli Bergen og Oslóar og svo mikið var áhorfið að ákveðið var í að senda ferjusiglinguna út beint.

Maraþonútsending norska ríkissjónvarpsins, NRK2, frá Hurtigruten, siglingu ferjunnar Nord Norge milli Bergen og Kirkenes, hefur slegið í gegn, ekki aðeins meðal Norðamanna, heldur um heim allan. Ferjan lagði upp á fimmtudag og strax fyrsta kvöldið fylgdust 1,3 milljónir manna með beinni útsendingu frá ferjunni.

NRK2 er með fjölda kvikmyndatökuvéla um borð og utan á skipinu, útsendingarstjórn og gervihnattasendi og þannig er tryggt að áhorfendur geti séð siglinguna frá upphafi til enda, hverja einustu mínútu, þá fimm daga sem hún stendur yfir. Ferjan er á norðurleið og þegar þetta er skrifað er hún á leið til Lofoten og heldur síðan til Tromsö. Hérlendis er hægt að sjá útsendinga bæði í Fjölvarpi Stöðvar 2 og á netinu.  

Fegursta sjóferð heims

Hurtigruten, sem Norðmenn kalla „fegurstu sjóferð heims“, rekur sögu sína aftur til ársins 1893, og er sambærileg íslensku strandsiglingunum. Langt fram eftir síðustu öld var þetta einhver mikilvægasti þáttur í samgöngukerfi Noregs og Hurtigruten er enn vinsæl meðal ferðamanna. Ellefu ferjur halda uppi áætlunarsiglingum þessa leið en þær koma við í 34 bæjum og borgum á leiðinni.

Þessi mikla athygli síðustu daga hefur ekki farið framhjá íbúum viðkomandi staða. Hvarvetna sem ferjan kemur flykkjast menn nú á smábátum til að taka á móti á henni og er bátafjöldinn stundum svo mikill að til vandræða horfir. Þannig skapaðist hættuástand þegar ferjan var að sigla inn til Bodö í morgun þegar menn á hraðbátum og sæþotum þustu á fleygiferð allt í kringum ferjuna og sumir afar nærri stefni hennar.

Keppast um að fanga athygli sjónvarpsmyndavélanna

Allskyns skemmtikraftar á viðkomandi stöðum reyna einnig að nýta sér athyglina og eru mættir á bryggjurnar til að flytja atriði sín þegar ferjan leggst upp að. Þannig voru á sömu bryggjunni á einum staðnum tvær lúðrasveitir, kammerkór, barnakór og fimleikaflokkur, allir að keppa um að fanga augu sjónvarpsmyndavélanna. Á bryggjunum hafa einnig sést  harmonikku- og jazzsveitir og  dansflokkar og raunar voru allsherjarpartíi og drykkjusöngvar á þeim stöðum sem ferjan kom inn á í gærkvöldi og á föstudagskvöld.

Það þykir raunar umhugsunarefni að svona sjónvarpsefni skuli slá í gegn. NRK í Bergen sendi í fyrra út samfellda dagskrá á rauntíma frá lestarferð milli Bergen og Oslóar og svo mikið var áhorfið að ákveðið var í að senda ferjusiglinguna út beint.

Hægt er að fylgjast með útsendingu norska ríkisútvarpsins hér.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×