Formúla 1

Engin uppgjöf hjá Alonso

Fernando Alonso eftir að hann féll úr leik í Kanada á sunnudaginn.
Fernando Alonso eftir að hann féll úr leik í Kanada á sunnudaginn. AP PHOTO: The Canadian Press
Fernando Alonso hjá Ferrari hefur ekki gefist upp á titilbaráttunni í Formúlu 1 þó hann sé orðinn 92 stigum á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigakeppni ökumenna. Alonso féll úr leik í kanadíska kappakstrinum í Montreal á sunnudaginn, eftir samstuð við Jenson Button hjá McLaren sem vann mótið.

Tólf Formúlu 1 mót eru enn eftir á árinu og Alonso segir í frétt á autosport.com að möguleikar á ná titilinum séu enn til staðar þegar tölfræðin sé skoðuð og keppinautar hans geti fallið úr leik.

Vettel er með 161 stig í stigakeppni ökumanna, Button 101, Mark Webber hjá Red Bull 94, Lewis Hamilton hjá McLaren 85 og Alonso 69. Alonso benti á að í fyrra hefði Hamilton fallið úr leik á Monza brautinni og í Singapúr, þegar hann var í titilslagnum það árið.

„Ef maður vinnur tvö mót og Vettel fellur úr leik, þá minnkar bilið mikið. En það er rét að þetta er ekki í okkar höndum, þannig að við verðum að einbeita okkur mót frá móti. Komst á verðlaunapall og reyna vinna einhver mót", sagði Alonso.

„Þetta er undir þeim komið (Red Bull liðinu) að gera mistök, ef það gerist ekki, þá eru þeir í góðri stöðu í stigamótinu", sagði Alonso.

Auk þess sem Vettel hjá Red Bull er fyrstur í stigakeppni ökumanna, þá er Red Bull efst í stigakeppni bílasmiða með 255 stig, McLaren er með 186 og Ferrari 101.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×