Erlent

Russel Crowe dregur ummæli um umskurði til baka

Mynd/AFP
Ástralski stórleikarinn Russell Crowe hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Twitter-síðu sinni um umskurði sem hann sagði bæði heimskulega og villimannslega. Síðar sagði hann rangt að halda því fram að umskurðir stuðli að hreinlæti.

Ummælin vöktu talsverð viðbrögð og það var þá sem leikarinn baðst afsökunar og sagðist ekki hafa ætlað með yfirlýsingum sínum að særa eða móðga fólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×