Erlent

Idol-keppandi handtekin fyrir að kýla eiginmann sinn í andlitið

Jessica gaf dómurunum fingurinn eftir að þeir völdu hana ekki í lokahópinn.
Jessica gaf dómurunum fingurinn eftir að þeir völdu hana ekki í lokahópinn.
Idol keppandinn sem brjálaðist eftir að hafa ekki komist í 24 manna úrslit í síðustu þáttaröð var handtekin í gærkvöldi eftir að lögreglumaður sá hana kýla eiginmann sinn nokkrum sinnum í andlitið á almannafæri í bænum Maine í Portland.

Jessica Candage vakti mikla eftirtekt í síðustu þáttaröð af raunveruleikaþættinum eftir að dómararnir tjáðu henni að hún væri ekki í 24 manna hópnum. Hún hafði áður tekið þetta í Idolinu og dottið út á sama stað. Hún gaf sjónvarpsvélunum puttann þegar hún labbaði út úr dómaraherberginu og sagði að dómararnir hefðu eyðilagt 25 ára afmælið hennar.

Á sunnudagskvöld var hún fyrir utan hótel í bænum að rífast við eiginmann sinn þegar lögreglumaður sá hana kýla hann nokkrum sinnum í andlitið.

Lögreglumaðurinn hafði þá afskipti af hjónunum og sagði Jessica að hún væri bara að reyna að koma í veg fyrir að eiginmaðurinn æki í burtu en þau áttu víst að hafa verið að rífast inn á veitingastað nokkru áður.

Hún var ákærð fyrir ofbeldi á almannafæri og var látin laus gegn þúsund dollara tryggingu. Mál hennar verður tekið fyrir þann 30. júní næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×