Erlent

Spelling reyndi að flýja en ók á vegg

Mynd/Getty
Bandaríska leikkonan Tori Spelling lenti í umferðaróhappi í gær þegar hún reyndi að stinga paparazzi ljósmyndara af, en hún var þá á leið með syni sína tvo í leikskóla. Það tókst ekki betur en svo að hún ók bíl sínum á skólabygginguna. Engin slasaðist við áreksturinn.

Spelling var allt annað en sátt með ljósmyndarann sem ætlaði að ljósmynda leikkonuna, börnin og bílinn, en starfsmenn leikskólans og foreldrar komu í veg fyrir það. Spelling íhugar nú að kæra hinn aðgangsharða ljósmyndara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×