Lífið

Arnar Grant og Ívar í matarbisness

MYNDIR/Sigurjón Ragnar
Arnar Grant og Ívar Guðmundsson eru flestum landsmönnum kunnugir fyrir hrausta kroppa og heilbrigðan lífsstíl.

Meðfylgjandi myndir
voru teknar þegar félagarnir héldu glæsilegt partý um helgina á efstu hæð í Turninum á Höfatorgi þar sem vinir og vandamenn komu saman til að fagna nýjustu afurð þeirra, Pakkanum, en þar bjóða þeir upp á heilan dag af hollum, næringarríkum og hitaeiningasnauðum mat.

Matarpakkinn inniheldur allar máltíðir dagsins og kemur í tveimur stærðum, 1.800 og 1.500 hitaeiningum. Meistarakokkurinn Snorri Snorrason sér um matseldina fyrir Pakkann og er maturinn eingöngu unninn úr fersku hráefni. Snorri hefur viðamikla alþjóðlega reynslu af ljúffengri og hollri matargerð sem gerir matarpakkana afar fjölbreytta. Arnar og Ívar passa að öll hlutföll próteins, kolvetna og fitu séu virt svo að líkaminn fái alla þá næringu sem hann þarfnast án þess að fara umfram 1.500 eða 1.800 hitaeiningar.

Arnar og Ívar segja að Pakkinn sé góð leið til að grennast og byggja upp heilsusamlegan lífsstíl. „Hver þekkir ekki að vera að hamast á fullu í ræktinni en ná ekki þeim árangri sem lagt var upp með. Það er langoftast vegna þess að ekki hefur verið hugað nægilega vel að mataræðinu. Fólk gleymir nefnilega að rétt mataræði vegur um 70% í að ná árangri í líkamsrækt. " segja hreystikapparnir.

„Við ætlum að koma góðu orði á pakkamat og í leiðinni að hjálpa Íslendingum að grennast og komast í gott form með hollu mataræði" segja félagarnir. Sjá myndirnar hér.

Sjá nánar Pakkinn.is.

Bíóleikur Lífsins á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×