Ræðu biskups beðið 13. júní 2011 14:45 Mynd/GVA
Mikil eftirvænting ríkir eftir ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, á kirkjuþingi á morgun þegar hann tjáir sig í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Viðmælendur fréttastofu úr hópi presta segja að búast megi við uppgjöri. Kirkjuþing ákvað í fyrrahaust að skipa rannsóknarnefnd til að fjalla um málið. Nefndin kynnti skýrslu sína á föstudaginn en hún telur að Karli Sigurbjörnssyni og öðrum vígðum þjónum kirkjunnar hafi orðið á mistök í starfi þegar ásakanir á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi komu fram árin 1996 og 2009. Ýmislegt hafi farið úrskeiðis og fagleg og vönduð vinnubrögð hafi skort.Biskupsritari víkur Kirkjuþing kemur saman á morgun en þar eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess biskup, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands eru með málfrelsi og tillögurétt. Einn hinna kjörnu fulltrúa, séra Baldur Kristjánsson, hefur sagt frá þinginu. Baldur var biskupsritari Ólafs á sínum tíma.Boltinn hjá Karli Sem fyrr segir er búist við uppgjöri eftir ræðu Karls. Margir úr hópi presta vilja bíða eftir og heyra afstöðu Karls áður en þeir tjá sig um málið. Einn þeirra er séra Vigfús Þór Árnason sem vildi ekki tjá sig um innihald skýrslunnar þegar eftir því var leitað á föstudagskvöldið, en gerðar eru athugasemdir við framgöngu hans í biskupsmálinu. Þá sagði séra Sigríður Guðmarsdóttir boltann vera hjá Karli og öðrum sem fjallað er um í skýrslunni. Af þeim sökum vildi hún ekki segja til um hvort Karl ætti að víkja sem biskup líkt og Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, fórnarlamb séra Ólafs Skúlasonar, hefur kallað eftir.Karl gerði mistök Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefndarinnar, segir Karl hafa gert mistök í starfi sínu í tvígang. Fyrst árið 1996 þegar hann tók að sér sálgæslu- og sáttahlutverk á milli Sigrúnar Pálínu og Ólafs, þegar hann hafði komið að málinu persónulega daginn áður á vettvangi kirkjuráðs. Síðan hafi ýmis mistök verið gerð af hálfu kirkjunnar þegar mál Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur kom inn á borð Biskupsstofu í mars árið 2009. Það eru talin ámælisverð vinnubrögð að leysa ekki úr máli Guðrúnar Ebbu heldur láta hana bíða í rúmt ár eftir viðbrögðum. Það sé ótvíræð niðurstaða nefndarinnar að Karl hafi sem biskup og forseti kirkjuráðs borið ábyrgð á þeim mistökum.
Mest lesið Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Erlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Innlent Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Innlent Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Innlent Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Erlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Sjá meira