Erlent

Handtekinn með sprengiefni

Maðurinn var stöðvaður við reglubundið umferðareftirlit en stór sprunga var í framrúðu bílsins.
Maðurinn var stöðvaður við reglubundið umferðareftirlit en stór sprunga var í framrúðu bílsins.
Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær 27 ára karlmann eftir að hálft kíló af sprengiefni fannst í bíl mannsins. Við nánari leit fundust einnig þrír rifflar og þrjár haglabyssur í bílnum. Maðurinn var stöðvaður við reglubundið umferðareftirlit en stór sprunga var í framrúðu bílsins.

Ekki liggur fyrir hvað maðurinn ætlaði að gera við sprengiefnið en lögreglan fann einnig hvellhettu og annan búnað til að setja saman sprengju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×