Aron Einar: Víti en ekki rautt Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 12. júní 2011 11:00 „
Það er ömurlegt að fá rautt á sínu fyrsta stórmóti og missa af næsta leik sem er mjög mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Aron Einar Gunnarsson á æfingu íslenska U-21 landsliðsins í morgun. Aron Einar fékk að líta rautt í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi í gær sem tapaðist, 2-0. Hann braut á sóknarmanni Hvít-Rússa og var í kjölfarið dæmt víti. „En fótboltinn er svona. Það er ekki hægt að gera neitt í þessu. Við verðum bara að standa saman sem lið - það kemur maður í manns stað og við verðum bara að vera klárir fyrir næsta leik.“ Hann segir að það hafi verið rétt að dæma víti. „En aldrei rautt. Það voru þó reglur sem þeir settu fyrir mótið að það eigi að vera rautt spjald fyrir að ræna leikmann góðu marktækifæri.“ „Við fórum á fund með dómurum tveimur dögum fyrir leik og þeir segja að tveggja fóta tækling er beint rautt líka. Ég fékk tvær svoleiðis og hann var greinilega ekki alveg samkvæmum sjálfum sér í þessum leik.“ „En ég get ekki kvartað neitt. Þetta var víti en ég hélt að ég myndi fá gult spjald fyrir þetta. Svona er lífið, það er ekki alltaf dans á rósum.“ „Við erum þéttur hópur. Strákarnir voru niðurdregnir í gær og það var ekkert gaman í rútuferðinni aftur til Álaborgar. En við erum búnir að rífa okkur upp núna og vonandi mætum við klárir í leikinn gegn Sviss. Það þýðir ekkert annað.“
Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Fleiri fréttir Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Sjá meira