Erlent

Minnsti maður í heimi 18 ára

Hinn filipeyski Junrey Balawing ætlar að fagna í dag með því að drekka bjór úr glasi sem er næstum jafn stórt honum sjálfum. Tilefnið er átján ára afmæli piltsins sem nú má formlega fá sér bjórsopa.

Það væri líklega ekki í frásögur færandi því í dag verður hann formlega minnsti maður í heimi. Balawing sem telur tæpa 56 sentimetra segist virkilega spenntur þar sem nú komist hann loksins í fullorðinna manna tölu.

Fulltrúar frá heimsmetabók Guinness munu vera á leið til Filipseyja til þess að hitta manninn, og skrá hann formlega sem minnsta mann í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×