Síðustu forvöð að komast strax í greiðsluskjól 29. júní 2011 14:42 Ásta S. Helgadóttir er Umboðsmaður skuldara
Tæplega 80 skuldarar sóttu um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara í gær og eru þar með komnir í greiðsluskjól. Þetta eru fleiri umsóknir á einum degi en bárust alla síðustu viku, þegar umsóknirnar töldust þó heldur margar. Þetta kom fram hjá Svanborgu Sigmarsdóttur, upplýsingafulltrúa Umboðsmanns skuldara, Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Frestur til að komast strax í greiðsluskjól þegar umsókn um greiðsluaðlögun er lögð inn rennur út á miðnætti á morgun þegar 1. júlí rennur upp. Eftir þann tíma kemst fólk ekki í greiðsluskjól fyrr en umsókn hefur verið samþykkt hjá Umboðsmanni skuldara. Svanborg sagði Í bítinu að allir þeir sem skulda meira en þeir ráða við eiga rétt á því að sækja um greiðsluaðlögun hjá embættinu. Ólíkt framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, sem hvetur fólk til að sækja um 110%-leiðina jafnvel þó þeir viti ekki hvort hún gagnist þeim, þá ræður Svanborg fólki frá því að sækja um greiðsluaðlögun ef ekki er víst að það þurfi á henni að halda. „Það hefur aðeins meiri áhrif að sækja um hjá okkur," segir Svanborg. Umsókn hjá Umboðsmanni skuldara er opinbert gagn um að fólk sé að leita nauðasamninga, henni er þinglýst og getur mögulega haft neikvæð áhrif á greiðslusögu fólks sem er ekki í vanda. Það hefur aðeins meiri áhrif að sækja um hjá okkur. Ef þú sækir um er þinglýst umsókninni, opinber gögn að þú hafir sótt um greiðsluaðlögun og sért að leita nauðasamninga. Ef þú þarft ekki á þessu að halda og þú þarft ekki að fara í greiðsluaðlögun þá gæti þetta mögulega verið neikvætt fyrir þína greiðslusögu að þú hafir reynt að leita neyðarasamnings. Ítarlegt viðtal við Svanborgu Í bítinu má hlusta á með því að smella á tengilinn hér efst.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Innlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Fleiri fréttir Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Sjá meira