Innlent

Icelandair fellir niður ferðir á morgun

MYND/Valgarður
Flugferðir Icelandair til og  frá París á morgun hafa verið felldar niður, sökum aðgerða flugmanna sem eru í yfirvinnubanni. Um er að ræða flug klukkan eitt í nótt sem fara átti til Parísar og flug frá Charles de Gaulle flugvelli í París sem fara átti í loftið klukkan átta í fyrramálið að staðartíma. Ekki er gert ráð fyrir að fleiri ferðir verði felldar niður.

„Farþegar á ofangreindum flugum eru beðnir um að hafa samband við ferðaskrifstofu þar sem bókun fór fram. Þeir viðskiptavinir sem bókuðu beint hjá Icelandair eru beðnir um að hafa samband í síma 5050100 eða fyrir sem eru staddir erlendis, þá má finna erlend símanúmer hér,“ segir á heimasíðu Icelandair.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×