Hafna því að ráðuneytin hafi ekki yfirsýn yfir keypta þjónustu 30. júní 2011 13:20
Forsætisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu Ríkisendurskoðunar sem fjallar um greiðslur ráðuneyta til starfsmanna félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Ráðuneytið segist fagna því að fram komi með skýrum hætti í skýrslunni að Ríkisendurskoðun hafi enga ástæðu til þess að ætla að upplýsingum hafi vísvitandi verið leynt með svari forsætisráðherra. „Jafnframt kemur fram með skýrum hætti í skýrslunni að beiðni forsætisnefndar Alþingis var víðtækari en upphafleg fyrirspurn Alþingis," segir ennfremur. Ráðuneytið vill þó koma nokkrum athugasemdum á framfæri og er því meðal annars hafnað að ráðuneyti innan Stjórnarráðs Íslands hafi ekki nægilega yfirsýn yfir aðkeypta þjónustu.Hér að neðan eru skýringar og athugasemdir ráðuneytisins í heild sinni:Forsætisráðuneytið fagnar því að fram komi með skýrum hætti á bls. 4 og 12 í skýrslu Ríkisendurskoðunar að Ríkisendurskoðun hefur enga ástæðu til þess að ætla að upplýsingum hafi vísvitandi verið leynt með svari forsætisráðherra.Beiðni forsætisnefndar Alþingis, sem liggur til grundvallar skýrslu Ríkisendurskoðunar, er ítarlegri en fyrirspurn þingmannsins til forsætisráðherra, þar sem ekki var hægt að lesa út úr fyrirspurninni að óskað væri upplýsinga um tímabundin störf eða nefndalaun.Forsætisráðuneytið bendir á að fyrirspurnin var þrívegis prentuð upp og henni breytt, sem er mjög óvenjulegt og jók verulega hættu á að villur kæmu upp við vinnslu svarsins.Forsætisráðuneytið fellst á að rétt hefði verið að setja fram í skriflegu svari fyrirvara um afmörkun svarsins varðandi félög, en telur að útilokað hefði verið að afla upplýsinga þar að lútandi innan þess frests sem gefinn er samkvæmt lögum til þess að svara skriflegum fyrirspurnum. Þörf var á flókinni upplýsingaöflun frá utanaðkomandi aðilum og rannsókn sem ekki hefði verið unnt að vinna nema á mun lengri tíma.Forsætisráðuneytið hafnar því að ráðuneyti innan Stjórnarráðs Íslands hafi ekki nægilega yfirsýn yfir aðkeypta þjónustu. Hins vegar fellst ráðuneytið á að fjármálaráðuneytið þurfi að setja samræmdar reglur um notkun launakerfisins.Forsætisráðuneytið bendir því á að 4. kafli skýrslunnar um viðbótarbeiðni forsætisnefndar Alþingis er í raun óháður því álitaefni hvort forsætisráðuneytið hafi svarað upphaflegri fyrirspurn með fullnægjandi hætti.Forsætisráðuneytið vill, þrátt fyrir að í 4. kafla skýrslunnar um sé að ræða viðbótarupplýsingar óháðar upphaflegu svari ráðuneytisins, benda á að framsetning í töflu 4.1 og 4.2 um tímabundin störf og nefndalaun getur gefið villandi mynd. Ráðuneytið telur að þar séu í raun að hluta til tilteknar greiðslur sem séu utan beiðni forsætisnefndar Alþingis. Er þarna m.a. blandað saman við greiðslum til starfsmanna sem voru í 100% starfi í ráðuneytum og voru ekki starfsmenn félagsvísindasviðs Háskóla Íslands á sama tíma. Þá liggja til grundvallar töflunum greiðslur sem komu fram í skriflegu svari forsætisráðherra og eru því tvíteknar í skýrslunni, sem gerir tölulegan samanburð einnig flókinn. Mikilvægt er að taka tillit til þessa þar sem hér er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða.Forsætisráðuneytið telur mikilvægt að Alþingi og Stjórnarráðið eigi á næstu mánuðum samráð um breytt vinnubrögð við vinnslu fyrirspurna og svara við þeim.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Innlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Fleiri fréttir Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Sjá meira