Fótbolti

Stórsigur hjá KR í Evrópudeildinni

Henry Birgir Gunnarsson á KR-velli skrifar
Úr fyrri leik liðanna i Færeyjum.
Úr fyrri leik liðanna i Færeyjum. Mynd/jens kristian vagn
KR er komið áfram í Evrópudeild UEFA eftir afar öruggan sigur, 5-1, á færeyska liðinu ÍF Fuglafjörður í kvöld. KR vann rimmu liðanna 8-2 samanlagt. Yfirburðir KR-inga í leiknum voru miklir og talsverður gæðamunur á liðunum. Það mátti sjá strax í upphafi.

KR-ingar léku Færeyingana sundur og saman, óðu í færum allan leikinn og hefðu hæglega getað skorað mun fleiri mörk.

KR mætir Zilina frá Slóvakíu í næstu umferð. Það er hörkulið sem var í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

Tölfræðin:

Áhorfendur: 877.

Dómari: Dag Vidar Hafsas, Noregi

Skot (á mark): 16-10 (8-2)

Varin skot: Hannes 1 – Jákup 2

Horn: 5-8

Aukaspyrnur fengnar: 18-15

Rangstöður: 4-9






Fleiri fréttir

Sjá meira


×