Erlent

Fjörutíu ár frá dauða Jim Morrison

Jim Morrison söngvari hljómsveitarinnar The Doors.
Jim Morrison söngvari hljómsveitarinnar The Doors.
Fjörtíu ár eru liðin í dag frá því að tónlistarmaðurinn og söngvari hljómsveitarinnar The Doors Jim Morrison fannst látinn í baðkari á hótelherbergi í París. Hann var 27 ára gamall þegar hann lést.

Fjölmargir aðdáendur hljómsveitarinnar og söngvarans ætla að koma saman í Père Lachaise kirkjugarðinum í París, þar sem hann er jarðaður, í dag og vera viðstaddir minningarathöfn um söngvarann.

Í kvöld munu svo á þriðja þúsund aðdáendur sækja tónleika með eftirlifandi meðlimum hljómsveitarinnar sem fer fram í miðborg Parísar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×