Erlent

Ráðist á Murdoch við yfirheyrslur hjá þingnefndinni - myndband

Ungur karlmaður réðist fyrir stundu á Rupert Murdoch þar sem hann sat fyrir svörum hjá breskri þingnefnd vegna hlerunarmálsins.

Maðurinn hélt á diski með einhverju hvítu efni á sem hann skvetti á fjölmiðlabaróninn. Efnið virðist hafa verið hættulaust því maðurinn fékk sjálfur talsvert af því framan í sig þegar eiginkona Murdochs snerist til varnar og rak honum hvínandi löðrung.

Og maðurinn virtist ekkert vera órólegur yfir að hafa efnið framan í sér. Það líktist helst jógurt.

Áhorfendum er hleypt inn á yfirheyrslur þingnefnda meðan rúm leyfir og þessi maður var einn áheyrenda. Hann var leiddur burt af lögregluþjónum og veitti enga mótspyrnu. Þvert á móti virtist hann brosleitur og spjallaði við lögregluþjón sem þurrkaði hvíta efnið framan úr honum.

Myndband af atvikinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×