Erlent

Fjölskylduharmleikur í Svíþjóð: Pabbinn handtekinn

53 ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa stungið sjö ára gamlan son til bana.
53 ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa stungið sjö ára gamlan son til bana. Skjáskot - Dagens Nyheter
Sænska lögreglan hefur handtekið föður sjö ára drengs sem var myrtur á sunnudag. Faðirinn mun sitja í gæsluvarðhaldi til 12. ágúst en honum er jafnframt gert að sæta geðrannsókn, að því er fram kemur í frétt Dagens Nyheter um málið.

Drengurinn fannst alvarlega slasaður og með stungusár á sunnudagsmorgun eftir að tilkynnt var um læti í íbúð í Umeå. Farið var með drenginn á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×