Erlent

Hillary gagnrýnir Sýrlandsforseta harðlega

Hillary Clinton ávarpar fréttamenn.
Hillary Clinton ávarpar fréttamenn. Mynd/AP
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Assad, forseti Sýrlands, sé ekki lengur lögmætur leiðtogi landsins. Sýrlenskum stjórnvöldum hafi mistekist að standa við alþjóðlegar skuldbindingar og ekki tekist að vernda erlenda stjórnarerindreka þegar stuðningsmenn forsetans réðust á sendiráð Bandaríkjamanna og Frakka í höfuðborginni Damaskus í gær.

Hundruð manna hafa látist í átökum í Sýrlandi síðustu vikur og mánuði þar sem almenningur hefur krafist umbóta og að Assad fari frá völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×