Erlent

Vilhjálmur og Kate slá í gegn

Mynd/AP
Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton, hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum þar sem þau hafa verið í opinberri heimsókn undanfarna daga. Áður en þau héldu til Bandaríkjanna heimsóttu Vilhjálmur og Kate Kanada, en um var að ræða þeirra fyrstu opinberu ferð eftir brúðkaup þeirra í apríl.

Hvarvetna hefur fólk drifið að þar sem hjónin hafa verið á ferðinni og fagnað þeim ákaft. Síðustu daga hafa Vilhjálmur og Kate verið í veislum meðal stórleikara í draumaborginni Hollywood auk þess sem þau hafa heimsótt grunnskólabörn í Los Angeles.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×