Erlent

Ól kvalaranum barn: Ég var ekki lengur ein

Níðingshjónin hafa játað sekt sína.
Níðingshjónin hafa játað sekt sína. Mynd/AP
Stúlku sem haldið var kynlífsþrælkun í átján ár segir að hún hafi ekki fundist hún lengur vera ein þegar hún ól kvalara sínum barn.

Æviminningar Jaycee Dugard koma út á morgun en henni var rænt fyrir 20 árum þegar hún var 11 ára. Í 18 ár héldu hjónin Phillip Garrido og Nancy Dugard fanginni og nýddust á henni. Dugard eignaðist tvær stúlkur á tímabilinu, það fyrra þegar hún var 14 ára. Ættingjar Dugard töldu hana af en upp komst um málið fyrir tveimur árum.

Í tilefni þess að æviminningar Dugard koma út á morgun veitti hún ABC-fréttastofunni viðtal sem sjónvarpað var í gærkvöld. Í viðtalinu lýsir Dugard meðal annars því þegar hún uppgötvaði, þá 13 ára, að hún væri ólétt.

Ennfremur segir hún að henni hafi liðið vel þegar hún fæddi eldri dóttur sína þar sem hún vissi að hún væri ekki lengur ein. „Hún var mjög falleg. Ég var ekki lengur ein og ég vissi að ég ætlaði ekki að láta neitt koma fyrri hana.“ Í viðtalinu segir Dugard að hún hafi ekki átt neinn kost á að flýja níðingshjónin.

Phillip Garrido og Nancy hafa játað sekt sína og verða að öllum líkindum í fangelsi til æviloka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×