Erlent

Vopnuðum dönskum ungmennum fjölgar

Dönsk lögregluyfirvöld hafa verulega áhyggjur af þróuninni.
Dönsk lögregluyfirvöld hafa verulega áhyggjur af þróuninni.
Færst hefur vöxt að dönsk ungmenni beri skotvopn og hafa lögregluyfirvöld verulega áhyggjur af þróuninni. Í frétt Jótlandspóstsins um málið segir að það sé einfaldlega í tísku meðal unglinga að ganga með byssur. Það veiti viðkomandi ákveðna stöðu meðal annarra unglinga. Byssur hafa þannig leyst hnífa og önnur barefli að hólmi hvað þetta varðar.

Danska lögreglan telur aðeins tímaspursmál hvenær þessi þróun muni leiða til blóðsúthellinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×