Erlent

Viktoría eignaðist dóttur í dag

David og Viktoría á góðri stundu
David og Viktoría á góðri stundu
David og Viktoría Beckham eignuðust dóttur í morgun en stúlkan er fjórða barn þeirra hjóna. Barnið fæddist á sjúkrahúsi í Los Angeles heimaborg þeirra hjóna og var hún 3,4 kíló að þyngd. Ekki er búið að gefa henni nafn.

Viktoría hefur ekki leynt því að henni hefur langað í stelpu enda á hún þrjá stráka, þá Brooklyn 11 ára, Romeo 8 ára og Cruz 5 ára. „Ég gæti hugsað mér að naglalakka hana, hjálpa henni að mála sig og velja föt með henni," sagði hún í viðtali fyrir nokkrum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×