Erlent

Var í þvottavélinni í klukkutíma

Það þykir með ólíkindum að átta vikna kettlingur hafi lifað það af að vera klukkutíma inni í þvottavél á meðan að vélin var í gangi. Kettlingurinn er nú hinn hressasti en þurfti þó að vera nokkra daga á spítala eftir uppákomuna.

Eigendum hans, sem búa í bænum Aberdeen í Skotlandi, grunaði ekki að kettlingurinn hefði komist inn í vélina áður en hún var sett í gang. Þeim var því að vonum brugðið þegar þeir tóku buxur út úr þvottavélinni sem litli kettlingurinn hélt dauðahaldi í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×